26. mars 2019

Árshátíð Akurskóla

Árshátíð Akurskóla

Árshátíð Akurskóla fer fram 28. og 29. mars.

Að kvöldi fimmtudagsins 28. mars fer fram árshátíð nemenda í 7. - 10. bekk. Nemendur mæta kl. 19:00 og atriði hefjast í íþróttahúsinu kl. 19:30. Eftir atriðin verður DJ Atli með diskótek á sal skólans fyrir nemendur. Nemendur í 7. - 10. bekk eiga frí föstudaginn 29. mars.
Föstudaginn 29. mars fer fram árshátíð nemenda í 1. - 6. bekk.

Kl. 9:00 1. - 3. bekkur Akurskóla í íþróttahúsinu.
Kl. 10:00 1. – 4. bekkur Stapaskóla í íþróttahúsinu. 
Kl. 11:00 4. - 6. bekkur Akurskóla í íþróttahúsinu.

Að loknum atriðum hafa foreldrar boðið til kaffisamsætis í skólanum og nánari upplýsingar um það koma frá kennurum

Hlökkum til að sjá sem flesta á þessum skemmtilega viðburði.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla