Árshátíð Akurskóla frestað
Ágætu foreldrar og forráðamenn.
Sú ákvörðun hefur verið tekin vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar að fresta árshátíðum grunnskólanna sem áttu að fara fram í næstu viku.
Þessi ákvörðun er tekin í samráði við fræðsluyfirvöld og neyðarstjórn Reykjanesbæjar og er tilgangurinn sá, þrátt fyrir að ekki sé komið á samkomubann, að draga eins og kostur er úr ónauðsynlegum fjölmennum samkomum.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.