5. mars 2020

Röskun á skólastarfi vegna fyrirhugaðs verkfalls BSRB 9. og 10. mars

Röskun á skólastarfi vegna fyrirhugaðs verkfalls BSRB 9. og 10. mars

Vegna boðaðs verkfalls aðildarfélaga BSRB mun stór hópur félagsmanna BSRB leggja niður störf mánudaginn 9. mars og þriðjudaginn 10. mars nk. ef ekki verður búið að semja fyrir þann tíma.

Röskun á skólastarfi verður vegna þessa þar sem stuðningsfulltrúar og starfsmenn skóla aðrir en kennarar og stjórnendur leggja niður störf.

Til að gæta fyllsta öryggis verður skólastarfi Akurskóla háttað þannig þessa daga ef til verkfalls kemur að:

1. - 4. bekkur mætir í skólann frá 10:00-11:20

5. - 7. bekkur mætir í skólann frá 8:10-9.30

8. - 10. bekkur mætir í skólann frá 8:10-12:00

Samræmt próf í 9. bekk er á áætlun 10. mars en ef það breytist látum við vita.  

Hádegisverður verður ekki framreiddur þessa daga og frístundaskólinn Akurskjól verður lokaður.

Bókleg kennsla verður í sundi og íþróttum þessa daga svo nemendur þurfa ekki að koma með íþrótta- eða sundföt.

Vinsamlegast notið Mentor til að tilkynna veikindi/leyfi eða sendið tölvupóst á akurskoli@akurskoli.is.

Börnin ganga heim að loknum skóladegi nema foreldrar sæki þau á tilsettum tíma.

Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með fréttum sunnudaginn 8. mars til að geta brugðist við á mánudagsmorgun ef til verkfalls kemur.

Athugið að í skólum Reykjanesbæjar eru mismunandi aðstæður og skólar bregðast við á mismunandi hátt út frá stöðunni á hverjum stað.

-----------------------------------------------

Due to a planned strike on behalf of BSRB, a large group of our staff will not attend work on Monday March 9th and Tuesday March 10th if a settlement will not be reached by then.

For that reason schooling in Akurskóli will be as following for those days:

1st – 4th grades will attend from 10:00-11:20

5th – 7th grades will attend from 8:10-9:30

8th – 10th grades will attend from 8:10-12:00

9th grade testing days will stay on schedule until further notice.

No lunch will be served at school those days and Akurskjól (Frístund) will also be closed.

The gym and pool will be closed, students will remain in their classroom and receive written lessons instead.

Please contact us through Mentor or email (akurskoli@akurskoli.is).

All students will be sent home at the end of their school day, unless they are picked up on time.

We recommend that parents follow news on Sunday March 8th for more information on the strike.

Note that circumstances differ in Reykjanesbær schools so schedules might not be the same for all students of Reykjanesbær.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla