28. maí 2018

Skólaslit 2018

Skólaslit 2018
Þriðjudaginn 5. júní verða skólaslit Akurskóla. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir með börnum sínum. Við hvetjum fjölskyldur að koma gangandi, hjólandi eða með strætó á skólaslitin. Ef fjölskyldur koma á bíl bendum við á bílastæði við unglingaganginn, við Tjarnagrill og við blokkir beint á móti skólanum. Þeir sem leggja upp á grasi eða ólöglega í hringnum fyrir framan skólann geta því miður átt von á sekt. Það spáir góðu veðri þennan dag, verum tímanlega í því, leggjum löglega aðeins lengra frá og röltum að íþróttahúsinu. 
 
Nemendur mæti til skólaslita sem hér segir:
1. – 9. bekkur kl. 9:00 í íþróttahúsi Akurskóla
1. - 3. bekkur Dalsbraut kl. 10:00 á Dalsbraut
10. bekkur kl. 11:00 í íþróttahúsi Akurskóla
 
Útskrift 10. bekkinga í Akurskóla er kl. 11:00. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að mæta með börnum sínum og eiga ánægjulega stund í skólanum þennan síðasta skóladag þeirra í grunnskóla. Boðið verður upp á veitingar að lokinni útskrift nemenda í 10. bekk.
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla