16. ágúst 2022

Upphaf skólastarfs og breytingar á tímasetningum

Upphaf skólastarfs og breytingar á tímasetningum

Nú styttist í að skólastarf hefjist í Akurskóla.

Fyrsti dagurinn er 23. ágúst. Þessi dagur verður skóladagur hjá nemendum í 2. – 10. bekk og notum við hann fyrir hópefli og til að undirbúa starfið fram undan með nemendum. Umsjónarkennarar taka á móti nemendum þennan dag og verða með hópinn sinn til 13:20. Frístund hefst kl. 13.20 þennan dag fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 2. - 6. bekk mæta kl. 8:20 og dvelja í skólanum til 13:20. Frístund opin fyrir þau börn sem þar eru skráð.

Nemendur í 7. - 10. bekk mæta kl. 8:30 og dvelja í skólanum til 13:20.

Nemendur í 1. bekk mæta í viðtal til umsjónarkennara þriðjudaginn 23. ágúst. Þar gefst tækifæri til að hitta kennarann og ræða saman um barnið sem er að hefja skólagöngu. Foreldrar fá tölvupóst frá umsjónarkennurum um tímasetningu funda. Nemendur í 1. bekk geta komið í frístund kl. 13:20 kjósi foreldrar það.

Hefðbundin skólasetning fyrir 1. bekk verður svo að morgni 24. ágúst kl. 8:20 en þá býður skólastjóri nemendur velkomna. Foreldrar eru velkomnir á athöfnina. Nemendur fara svo í kennslu að athöfn lokinni.

Í haust gerum við breytingar á tímasetningum í skólanum. 7. – 10. bekkur byrjar í skólanum öllu jafna kl. 8:30. Mikilvægt er þó að skoða vel stundatöflur á Mentor þar sem tímasetningar geta verið breytilegar vegna vals eða íþrótta og sundtíma.

Hjá nemendum í 1. – 6. bekk hefst skólinn kl. 8:20. Stofur opna þó kl. 8:00. Nemendur geta dvalið þar í rólegheitum með stuðningsfulltrúa þar til kennsla hefst ef foreldrar kjósa það.

Skólahúsnæðið opnar kl. 7:50, en mælst er til þess að nemendur mæti ekki fyrr en eftir kl. 8:00 þegar stuðningsfulltrúar eru mættir til vinnu.

Hlökkum til samstarfsins skólaárið 2022-2023.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla