13. október 2020

Upplýsingar vegna Covid-smits í Akurskóla

Upplýsingar vegna Covid-smits í Akurskóla

Seint í gærkvöldi komu upp þrjú smit í Akurskóla, tvö hjá starfsmönnum og eitt hjá nemanda.

Í ljósi umfangsins og í samráði við smitrakningarteymið voru allir nemendur og starfsmenn í 7. – 10. bekk settir í úrvinnslusóttkví sama kvöld og upplýsingar bárust.

Nú þegar smitrakning er hafin er ljóst að nemendur í 7. og 9. bekk og öðrum hópnum í 10. bekk, um 100 nemendur, þurfa að fara í sóttkví þar til niðurstaða úr skimun liggur fyrir. Forráðamönnum hefur verið tilkynnt um það og hvenær sóttkví lýkur en það er misjafnt eftir því hvenær nemendur voru útsettir fyrir smiti.

Þá hafa 8 starfsmenn einnig verið sendir í sóttkví vegna málsins.

Aðrir árgangar í skólanum eða starfsfólk hafa ekki verið útsettir fyrir smiti. Ef einhverjar breytingar verða á stöðu mála í skólanum munum við upplýsa foreldra.

Við höfum farið í einu og öllu eftir tilmælum smitrakningarteymis og unnið eftir því verklagi sem þeir setja okkur. Ef einhverjar spurningar vakna biðjum við ykkur þó um að hika ekki við að hafa samband.

Hugur okkar í skólanum er hjá þeim smituðu og sendum við þeim okkar bestu kveðjur.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla