11. febrúar 2024

Skólastarf hefst á ný mánudaginn 12. febrúar

Skólastarf hefst á ný mánudaginn 12. febrúar

Skólastarf verður í öllum leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum á morgun mánudaginn 12. febrúar nema eitthvað óvænt komi upp á. Þetta á einnig við um starfsemi frístundaheimila. Þess má geta að skipulagt íþróttastarf hjá börnum og ungmennum fellur niður og því er engin frístundarúta í gangi.

Vel gengur að koma og halda hita á skólabyggingum en starfsfólk sveitarfélaganna og aðgerðastjórn Suðurnesja hafa nýtt helgina til að koma fyrir hitablásurum í allar byggingar. Þó að hiti sé góður þá getur verið gólfkalt og því eru nemendur hvattir til að nota inniskó eða vera í ullarsokkum.

Ekki er víst að Skólamatur geti afgreitt mat og væri því gott að foreldrar gerðu ráð fyrir að nesta börnin sín að minnsta kosti á morgun. Nánari upplýsingar frá Skólamat koma í kvöld.

Staðan verður tekin reglulega og upplýsingar verða sendar frá skólastjórnendum til foreldra/forráðamanna ef gera þarf breytingar og aðlaga skólastarf að þeim.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla