1. desember 2011

1. des fagnaður í Narfakotsseylu

1. des fagnaður í Narfakotsseylu Nemendur og starfsmenn Akurskóla gengu fylktu liði niður á útikennslusvæðið okkar við Narfakotsseylu í morgun.   Þar var búið að hlaða í bálköst og kveiktur varðeldur.  Hópurinn tók lagið við varðeldinn og þeir Magnús myndmenntakennari og Guðmundur sem hefur stýrt vinnunni við uppsetningu útikennslustofunnar sögðu nokkur orð. Nemendur leikskólanna í  Innri Njarðvík tóku einnig þátt í þessari skemmtilegu athöfn. Að lokinni athöfninni í Seylunni fleyttu nemendur flöskuskeytum í sjóinn í þeirri von að þau berist burt með straumnum.
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla