10 ára afmæli Akurskóla

Í dag 9. nóvember hélt Akurskóli upp á 10 ára afmæli sitt. Skólinn var vígður 9. nóvember 2005.
Það hefur ýmislegt verið gert síðastliðnar vikur og daga og var gert í dag í tilefni 10 ára afmælisins. Klukkan 8:00 komu allir nemendur saman í íþróttahúsinu og sungu afmælissönginn. Kórinn leiddi svo allan hópinn þar sem sunginn var nýr skólasöngur Akurskóla. Höfundur hans Guðmundur Hreinsson fékk viðurkenningu fyrir þennan skemmtilega söng. Þá fengu allir nemendur skúffukökur og mjólk í nestinu.
Foreldrafélagið færði skólanum forláta bjöllu að gjöf. Þegar verið var að undirbúa gjöfina kom það í ljós að skipsbjallan er úr Voninni KE 2 sem afi Sigurbjargar skólastjóra, Gunnlaugur Karlsson, gerði út frá Keflavík í mörg ár. Og orðið von er sterkt því stundum þegar erfiðlega gengur þá eigum við alltaf vonina.
Og á plattann sem bjallan hangir á er letrað:
Bjartar vonir vakna
í vorsins ljúfa blæ
Bjarmar fyrir björgum,
við bláan sæ.
Fagur fuglasöngur
ný fyllir loftin blá,
brjóstin ungu bifast
af blíðri þrá.
Eftir hádegi var svo Rauðhöfði vígður af Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra. Rauðhöfði er hvalur á lóð skólans er verkið var unnið allt skólaárið í fyrra af nemendum skólans og Helgu Láru Haraldsdóttur myndlistarkennara með aðstoð Sigmundar Friðrikssonar. Nemendur skólans hafa einnig unnið lágmynd í leir sem er við inngang skólans út frá þemanu tíu.
Í dag voru svo allir árgangar með atriði annað hvort á sal skólans kl. 10 eða 12:40 eða í sínum rýmum. Deginum lauk svo á því að fulltrúar úr hverjum árgangi komu með rör sem fór í tímahylkið sem opnað verður eftir 40 ár þegar skólinn verður 50 ára.
Hægt er sjá fleiri myndir á myndasíðu Akurskóla.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.