11. febrúar 2009

112 dagurinn

112 dagurinn

112 dagurinn er í dag. Að því tilefni fengum við Kristján Karlsson Grens í heimsókn en hann fræddi nemendur í 4.-9. bekkjum um starfssemi neyðarnúmersins 112 (einn, einn tveir). Nemendur voru mjög áhugasamir og voru duglegir að spyrja. Þökkum við Kristjáni kærlega fyrir innlit sitt til okkar.

Markmið 112-dagsins er að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund almennings um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Samstarfsaðilar dagsins eru Neyðarlínan, Ríkislögreglustjórinn og lögreglan, Brunamálastofnun, slökkviliðin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, Landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Flugstoðir. (heimild visir.is)

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla