112 dagurinn!
Í dag 11.2 er 112 dagurinn og af því tilefni var athöfn á sal Akurskóla.
Tveir drengir í 3. bekk fengu viðurkenningu frá Brunavörnum Suðurnesja fyrir rétt leysta eldvarnagetraun. Það voru þeir Magnús Óli Friðriksson og Róbert William Georgsson sem fengu vegleg verðlaun m.a. Ipod Shuffle. Róbert William var því miður ekki á staðnum en vinkona hans Regína Krista Eyjólfsdóttir tók við verðlaununum fyrir hans hönd.
Þá fékk Aníka Mjöll Júlíusdóttir viðurkenningu fyrir björgun barns úr sundlaug í febrúar 2012. Hún var á sundæfingu þegar lítil stúlka féll í laugina og sýndi Aníka Mjöll mikið snarræði þegar hún náði barninu upp úr lauginni. Það var Guðbjörg Sigurðardóttir formaður Rauða Krossins á Suðurnesjum sem veitti Aníku Mjöll viðurkenninguna frá Rauða Krossi Íslands.
Í tilefni dagsins mættu fréttamenn frá Stöð 2, Íslandi í dag, í skólann og tóku upp myndir frá athöfninni. Tekin voru viðtöl við móður stúlkunnar sem Aníka bjargaði og að sjálfsögðu Aníku sjálfa. Innslagið verður vonandi sýnt á Stöð 2 í kvöld eða annað kvöld.
Fleiri myndir í myndasafni hér á heimasíðunni.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


