29. janúar 2013

5. bekkur les fyrir leikskólakrakka

5. bekkur les fyrir leikskólakrakka

 

Í dag fóru nemendur í 5. bekk á leikskólann Holt og lásu fyrir elstu börnin þar. Þeir lásu upp úr bókinni Iðnir krakkar eftir Sigrúnu Eldjárn. Nemendur fór heim með bókina og æfðu sig áður en þeir lásu fyrir börnin. Þetta er liður í æfingu fyrir Litlu upplestrarkeppnina sem haldin er ár hvert í 4. og 5. bekk. Þetta heppnaðist mjög vel og stóðu þau sig með mikilli prýði. Leikskólanemendurnir á Holti höfðu einnig gaman af.

 

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla