26. febrúar 2013

7. bekkur fór á Reyki í Hrútafirði

 

Dagana 11. - 15. febrúar fóru 28 krakkar úr Akurskóla á Reyki í Hrútafirði. Þetta var mjög skemmtileg og viðburðarrík vika þar sem nemendur sóttu fjölbreyttar kennslustundir sem voru mjög ólíkar því sem þeir eiga að venjast.
Náttúran skipar mjög mikinn sess í kennslunni og vorum við mjög heppin með veðrið, heiðskírt og logn alla dagana og stjörnubjart á kvöldin. Í fjöruferðum í náttúrufræði sáust bæði selir og hvalir og vakti það mikla lukku. Á kvöldin voru kvöldvökur þar sem nemendur Akurskóla voru mjög duglegir að vera með skemmtiatriði og síðasta kvöldið var svo kvöldvaka sem endaði í diskóteki.
Hópurinn fór eitt kvöldið í kvöldgöngu með vasaljós og fóru í leiki í myrkrinu og höfðu gaman af því að sjá hversu stjörnubjart væri svona utan þéttbýlisins :)
Á miðvikudeginum var Öskudagur og voru margir nemendur með búninga að heiman og skemmtun var um miðjan daginn þar sem kötturinn var sleginn úr tunninni og krakkarnir fengu smá nammipoka (sem þeir voru ánægðir með enda Reykir nammilaus staður). Síðasta daginn var borðtennismót þar sem drengir úr Akurskóla vermdu fyrstu þrjú sætin og um kvöldið var svo hárgreiðslukeppni þar sem stelpur úr skólanum greiddu og máluðu bæði andlit og neglur drengjanna.
Í heildina var ferðin í alla staði frábær, vel tekið á móti okkur og mikil upplifun að fara svona í burtu frá foreldrum dögum saman.
Myndir af ferðinni koma inn á heimasíðuna í vikunni.
 
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla