Á döfinni...
Þessa dagana erum við á fullu að æfa fyrir árshátíð Akurskóla. 1. og 2. bekkur ákváðu að taka fyrir ævintýrið Dýrin í Hálsaskógi. Við skiptum bekkjunum í 3 hópa og hver hópur syngur eitt lag úr ævintýrinu. Lögin eru Vögguvísa (Dvel ég í draumahöll), Piparkökusöngurinn og Grænmetisvísur. Árshátíðin verður á föstudaginn 7. mars klukkan 15-16.30 og hvetjum við foreldra og aðra gesti að mæta og sjá nemendurna slá í gegn.
Næsta vika fer svo að mestu leyti í að fræðast um Páskahátíðina, föndra og í að hlakka til að fara í páskafrí.
Kveðja úr Tjarnarkoti.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


