Aðstoðarskólastjóri kvaddur.
Í gær kvöddu nemendur og starfsmenn Akurskóla Lars aðstoðarskólastjóra á sal. Lars hefur tekið við starfi skólastjóra í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði og óskum við honum velfarnaðar í nýju starfi og þökkum honum fyrir samstarfið í Akurskóla. Halldóra Kristín Magnúsdóttir tekur við starfi Lars og mun hún koma til starfa í næstu viku. Við bjóðum Halldóru hjartanlega velkomna til starfa.  Einnig mun Helena Borgarsdóttir snúa aftur til starfa eftir fæðingarorlof í vetur og bjóðum við hana einnig hjartanlega velkomna. Helena verður umsjónarkennari Kiðlinga og kemur í stað Þórdísar sem nú er komin í fæðingarorlof.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


