3. desember 2015

Aðventan

Aðventan

Nú er desember genginn í garð með öllum sínum hefðum og venjum. Margt skemmtilegt er á dagskrá í skólanum þessa dagana. Við fáum rithöfunda í heimsókn, borðum jólamat og föndrum. Eitt af því sem við bjóðum nemendum okkar upp á er heimsókn í kirkjuna 11. desember. Þessar ferðir okkar eru mjög hátíðlegar og nemendur fá að hlýða á sögu sem tengist jólunum og svo syngjum við saman tvö til þrjú jólalög. Starfshættir grunnskóla skulu samkvæmt Aðalnámskrá m.a. mótast af umburðarlyndi og kærleika og kristinni arfleið íslenskrar menningar. Í fjölmenningarlegu samfélagi nútímans má búast við því að foreldrar vilji ekki að börn þeirra fari í kirkju. Það er mjög skiljanlegt og viljum við biðja þá foreldra að senda okkur línu ef svo er á akurskoli@akurskoli.is.

Nánara skipulag fyrir desembermánuð í skólanum fylgir hér með.

3.desember - Nemendaráð skreytir skólann 
4. desember - Nemendur í 8.-10. bekk föndra, skreyta í miðlotunni frá klukkan 10-12. 
9.desember - Nemendur í 2.-3. bekk fá Helgu Helgadóttur rithöfund í heimsókn sem kynnir bókina sína, Dóttir veðurguðsins. 
10.desember- Séra Baldur kemur og verður með hátíðarstund á sal fyrir 7.-10. bekk
11. desember - Kirkjuheimsókn hjá 1.-6. bekk
16. desember - Hátíðarmatur - Hangikjöt og ísblóm í eftirrétt 
18. desember - Litlu jólin

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla