11. febrúar 2013

Akurskólaliðið keppti til úrslita í Gettu enn betur

Akurskólaliðið keppti til úrslita í Gettu enn betur

Lið Akurskóla keppti í kvöld í spurningakeppni grunnskólanna; Gettu enn betur. Akurskóli náði góðum árangri annað árið í röð en liðið keppti til úrslita eftir að hafa slegið lið Holtaskóla og Njarðvíkurskóla úr keppni. Liðið skipuðu þau Alexander Hauksson, Una María Magnúsdóttir og Sóley Ösp Sverrisdóttir. Lokaviðureignin var mjög spennandi og lauk með sigri Myllubakkaskóla.

Til hamingju með góðan árangur!

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla