1. október 2010

Akurskóli á iði - 3. og síðasta gangan

Akurskóli á iði - 3. og síðasta gangan Laugardaginn 2. október klukkan 11:00 ætlum við í síðustu göngu haustins. Það var á áætlun að fara þessa ferð sl. laugardag en henni var frestað vegna veðurs. Að vanda hittumst við við Akurskóla og förum í samfloti þaðan. Við ætlum að leggja leið okkar út á Reykjanestá. Þar ætlum við að ganga upp á Skálafell, sem er aðeins 76 m yfir sjó, en samt góður útsýnistaður. Þaðan ætlum við að ganga að vita einum en svo áfram að Valahnjúkamöl sem er  hár hnullungakambur byggður upp af hafinu. Þar mega þau sem vilja skoppa á milli hnullunga að Valahnjúknum eða fara aðra leið að staðnum þar sem við ætlum kveikja í kolum og grilla okkur pylsur. Það eru 4 km ganga að grillstaðnum. Eftir grillið fer hver og einn á sínum forsendum aftur að bílunum sem eru í eins km fjarlægð, hvort sem þá langar til að skoða hnjúkana betur, skoða vitann eða ganga stystu leið. Gott er að vera vel skóaður í þessari ferð og nauðsynlegt að taka eitthvað gott með á grillið.
Kv. Anna Soffía
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla