16. september 2011

Akurskóli á iði - Göngur að hefjast

Akurskóli á iði - Göngur að hefjast

17. september kl. 14: Réttir á Þórkötlustöðum, Grindavík.

25. september kl. 10 frá Akurskóla: Lambafellsklofi. Stutt og laggóð ferð sem kemur skemmtilega á óvart.

2. október kl. 10 frá Akurskóla: Brauðstígur.  Gengið frá Eldvörpum út í gróft Sundvörðuhraunið, gengið verður í mjög grófu hrauni þar til komið er inná slétt helluhraunið og því fylgt að fallega hlöðnum hraunbyrgjum sem standa í hraunbreiðunni.

9. október kl. 10 frá Akurskóla : Katlar. Hraunsvæði vestan Selatanga. Þar er að finna hellisskúta og gamlar refagildrur, líkast til frá 18. Eða 19. öld. Skemmtilegt ævintýrasvæði. Þar höfum við hugsað okkur að grilla. Hver kemur með e-ð gott á grillið.

Farið er í samfloti frá Akurskóla nema í réttirnar. Þangað fara allir á eigin vegum. Áætlað er að hver ferð taki 2-3 tíma. Göngufólk hafi með sér drykk og nesti, pylsur á grillið í síðustu göngunni. 

Góða ferð.

Helga og Anna Soffía sem ætla að stofna gönguhóp og halda áfram að ganga á fjöll a.m.k.  1x í mánuði í vetur. Þeir sem eru áhugasamir um að vera með, setjið ykkur í samband við Helgu á helga.eiriksdottir@akurskoli.is eða Önnu Soffíu á annawah@simnet.is  Dagskrá þeirra gangna verður auglýst síðar.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla