Akurskóli á iði
Sl. sunnudag lagði vaskur hópur nemenda og fjölskyldna þeirra af stað frá Akurskóla undir dyggri leiðsögn Magnúsar Pálssonar, kennara.  Hann fór með þau á söguslóð Innri-Njarðvíkur og fræddi þau m.a. um Ástu málara frá Narfakoti en hún var fyrst kvenna á Íslandi til að verða meistari í iðngrein og Klemens frá Stapakoti sem var rammur af afli. Auk þess var staldrað við í Garðbæ, Hólmfastskotatóft, þar sem myndin er tekin , Tjarnarkoti og kirkjuna.  Gangan var mjög fróðleg og skemmtileg og ekki skemmdi veðrið fyrir.  Innri-Njarðvík á sér langa og merka sögu sem gaman væri að kynnast betur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


