Akurskóli í þriðja sæti í Stóru upplestrarkeppninni
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Duushúsum í gær, fimmtudaginn 4. mars. Þeir Teitur Ari Theódórsson og Ólafur Andri Magnússon voru fulltrúar Akurskóla en tólf keppendur frá sex skólum tóku þátt og þóttu allir standa sig með prýði. Það var fulltrúi frá Holtaskóla sem sigraði í keppninni að þessu sinni og fulltrúi Heiðarskóla var í öðru sæti en Teitur Ari, fulltrúi Akurskóla, lenti í því þriðja. Við þökkum þeim Ólafi Andra og Teiti Ara fyrir glæsilega framgöngu í þessari keppni um leið og við óskum þeim til hamingju með glæstan árangur.
 
 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


