26. ágúst 2015

Akurskóli notar Byrjendalæsi sem kennsluaðferð

Undanfarna daga hefur mikið farið fyrir umfjöllun um gengi skóla á samræmdum könnunarprófum sem notast við kennsluaðferð sem ber heitið Byrjendalæsi. Akurskóli innleiddi þessa aðferð í 1. og 2. bekk skólaárið 2007-2008. Aðferðum Byrjendalæsis hefur verið stillt upp sem andstæðu við svokallaða hljóðaaðferð. Við í Akurskóla notum að sjálfsögðu líka hljóðaaðferð þegar við kennum lestur, leggjum inn stafi og hljóð og vinnum með það. Aðferðir Byrjendalæsis eru bara eitt verkfærið í kistunni okkar og hefur nýst mjög vel. Það er mikilvægt að kennarar búi yfir mörgum aðferðum við að kenna lestur. Aðferð sem hentar einu barni hentar ekki endilega öðru barni.

Það er mat kennara og stjórnenda Akurskóla að kennsluaðferðir Byrjendalæsis styðji við grunnþætti aðalnámskrár og lykilhæfni sem ný aðalnámskrá leggur áherslu á í viðmiðum um námsmat í grunnskóla.

Í samræmdum prófum er aðeins mældur afmarkaður hluti þess sem sérhver skóli hefur tækifæri til að meta hjá nemendum sínum. Í Akurskóla leggjum við okkur fram um að meta nám nemenda okkar samkvæmt viðmiðum aðalnámskrár samhliða því sem við tökum niðurstöður samræmdra prófa alvarlega og bregðumst við þeim eftir því sem við á hverju sinni.

Niðurstöður skólans á samræmdum prófum eru alltaf birtar í sjálfsmatsskýrslu skólans og á meðfylgjandi mynd má sjá þróun síðustu ára.

Við erum ánægð með þær hugmyndir og aðferðir sem fylgja Byrjendalæsi og kennarar halda áfram að nýta alla sína þekkingu við að kenna lestur nemendum til heilla.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla