Akurskóli og Unglingadeildin Klettur í samstarf
Akurskóli og Unglingadeildin Klettur hafa gert með sér samning um samstarf í vetur. Samningurinn er á þann veg að nemendur í 9. og 10. bekk geta fengið metið starfið hjá unglingadeildinni sem hluta af vali sínu í skólanum. Þetta er þriðja árið sem Akurskóli tekur þátt í þessu samstarfi við Björgunarsveit Suðurnesja og reynsla skólans af því er mjög góð. Það skal tekið fram að ekki er nauðsynlegt að hafa valið Klett sem val til að sækja fundi hjá Unglingadeildinni því þeir eru opnir fyrir alla áhugasama unglinga á aldrinum 14 - 16 ára. Fundirnir eru alltaf á fimmtudögum klukkan 20:00 í björgunarsveitarhúsinu við Holtsgötu.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


