Akurskóli útskrifar nemendur í 10. bekk í fyrsta sinn
Fimmtu skólaslit Akurskóla fóru fram í gær þriðjudaginn 8. júní á sal skólans. Þessi skólaslit voru söguleg fyrir þær sakir að Akurskóli útskrifaði í fyrsta sinn nemendur í 10. bekk en það voru 35 stoltir nemendur sem tóku við viðurkenningar- og hrósskjölum sem samnemendur og kennarar þeirra höfðu útbúið. Þessi árgangur hefur ætíð verið elsti árgangurinn í skólanum og hefur vaxið og dafnað með honum síðustu fimm árin. Skólaslitin voru einstaklega hátíðleg og að athöfn lokinni voru kaffiveitingar í boði foreldra.
Önnur skólaslit fóru fram með þeim hætti að hver bekkur var kallaður upp á svið og kennari þeirra las upp hrós samnemenda um leið og hann afhenti vitnisburð og viðurkenningarskjöl og að sjálfsögðu var klappað fyrir hverjum einum nemanda.
Starfsfólk Akurskóla óskar nemendum og foreldrum þeirra gleðilegs sumars.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


