Alþjóðadagur menningarlegrar fjölbreytni
Í dag héldum við upp á dag menningarlegrar fjölbreytni. Við hófum daginn á sameiginlegri söngstund þar sem við sungum tvö lög, Elsku heimur úr Fíusól og Ég er vinur þinn úr Toy story. Einnig hafa nemendur verið að vinna við ýmis verkefni tengd deginum.
Óvænt atriði var í lokin þar sem starfsfólk skólans dönsuðu Fugladansinn fyrir nemendur og skapaðist mikil stemming. Fór það svo að allir nemendur voru komnir upp á svið og dönsuðu með.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


