26. apríl 2026

Andlát - Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi aðstoðarskólastjóri

Andlát - Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi aðstoðarskólastjóri

Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi aðstoðarskólastjóri
f. 1.6.1963 d. 25.4.2026

Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi aðstoðarskólastjóri Akurskóla er látin.

Bryndís starfaði sem aðstoðarskólastjóri Akurskóla á árunum 2012–2014.

Bryndís var mikil skólamanneskja sem setti sannarlega spor sín á skólastarf í Reykjanesbæ. Áður en hún kom til starfa í Akurskóla hafði hún kennt í Myllubakkaskóla, Holtaskóla og Heiðarskóla ásamt því að vera deildarstjóri í Heiðarskóla í mörg ár. Bryndís varð svo skólastjóri í Myllubakkaskóla haustið 2014.

Hvar sem hún starfaði naut hún mikillar virðingar fyrir fagmennsku, eldmóð og einlægan áhuga á velferð nemenda og starfsfólks.

Við minnumst Bryndísar með hlýhug og sendum fjölskyldu og aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla