4. júní 2026

Anna Elísabet, Lísa, tilnefnd til Hvatningarverðlauna menntaráðs

Anna Elísabet, Lísa,  tilnefnd til Hvatningarverðlauna menntaráðs

Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar voru afhent við hátíðlega athöfn þann 3. júní. Verðlaunin eru veitt árlega til að vekja athygli á framúrskarandi verkefnum og starfi sem stuðlar að jákvæðri þróun í skóla- og frístundastarfi bæjarins.

Frá Akurskóla var tilnefnt verkefnið Námsver á unglingastigi undir leiðsögn Önnu Elísabetar Gestsdóttur kennara eða Lísu eins og hún er alltaf kölluð. Námsverið er mikilvægt stuðningsúrræði þar sem nemendur fá einstaklingsmiðaða aðstoð bæði námslega og félagslega í rólegu og uppbyggilegu umhverfi. Þar er lögð rík áhersla á vellíðan, sjálfstraust og jákvæð tengsl, auk þess að styðja nemendur í að takast á við áskoranir með uppbyggilegum hætti. Verkefnið hefur þróast í öflugt fyrirmyndarúrræði þar sem nemendur finna fyrir öryggi, virðingu og tilheyra skólasamfélaginu. Á myndinni með fréttinni eru hluti nemenda á unglingastigi sem sækir námsverið hjá Lísu. 

Á athöfninni hlutu þrjú verkefni sérstaka viðurkenningu sem áhugaverð og eftirtektarverð: Öflugt og metnaðarfullt frístundastarf í Ösp, Sögupokar í Drekadal og Saman fyrir betri heim á Gimli.

Hvatningarverðlaun menntaráðs að þessu sinni hlaut Heiðarskóli fyrir verkefnið Fab samstarf þar sem sköpunarkraftur nemenda var í forgrunni.

Við óskum öllum sem voru tilnefndir til hamingju.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla