27. mars 2009

Árshátíð Akurskóla

Árshátíð Akurskóla

Nemendur Akurskóla stóðu sig með glæsibrag á árshátíð skólans í dag, föstudaginn 27. mars. ,,Frægir og fyrirmenni” var þema árshátíðarinnar og fengu gestir að njóta skemmtilegra atriða í takt við hressa tónlist eftir fræga listamenn. Nemendur sýndu meðal annars dansatriði úr þekktum bíómyndum, eins og ,,High School musical“ og ,,Mamma mia“ og tóku tónlistaratriði að fyrirmynd Páls Óskars og gleðigöngunnar. Nemendur sögðu brandara, hljómsveit skipuð drengjum tróð upp og fluttu tónlistar- og dansatriði. Auk þess fluttu nemendur leikþætti sem kitluðu hláturtaugar áhorfenda. Yngstu nemendur skólans stóðu sig ekki síður með glæsibrag enda skipar Akurskóli fullt af flottum og frambærilegum listamönnum. Kynnar árshátíðarinnar skiluðu hlutverki sínu af stakri prýði. Segja má að börnin hafi staðið sig mjög vel enda fengum við jákvæð viðbrögð áhorfenda sem snæddu kökur og annað meðlæti í kennslurýmum barnanna eftir dagskrá á sal.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla