18. maí 2021

Árshátíð Akurskóla 19. maí

Árshátíð Akurskóla 19. maí

Árshátíð Akurskóla verður haldin miðvikudaginn 19. maí. Í ár verður hún með breyttu sniði í ljósi takmarkana vegna Covid-19. Við getum því miður ekki boðið foreldrum á mæta í skólann og horfa á atriðin. Þess í stað bjóðum við upp á streymi á Youtube síðu Akurskóla. Foreldrar fá sendan tengil heim í tölvupósti.  

Hátíðin hefst kl. 9.00 og er áætlað að henni ljúki um kl. 11.00. Allir árgangar verða með atriði á sal þennan dag og allir nemendur horfa á atriðin í sínum heimastofum. Við hvetjum nemendur til að mæta snyrtilega klædd. Skólinn býður uppá veitingar þennan dag og því óþarfi að koma með nesti.  

Mæting nemenda: 
Nemendur mæta í sína heimastofu kl. 8.45 og fara heim að lokinni hátíð um kl. 11.00.  

Frístundaskólinn Akurskjól verður lokaður þennan dag. 

Drög á dagskrá: 

Tími 

Atriði 

Umsjón 

Kl. 9.00 

Setning 

Skólastjóri

Kl.9.10 

Söngur (2 lög) 

1. bekkur 

Kl.9.20 

Ljóðalestur og blokkflauta 

2. bekkur 

Kl. 9.30 

Leikþáttur (2 lög) + söngur 

3. bekkur 

Kl. 9.40 

Dans  

4. bekkur 

Kl. 9.50 

Leiklestur 

5. bekkur 

Kl. 10.00 

Verum við sjálf 

6. bekkur 

Kl. 10.10 

Árgangasýning 

7. bekkur 

Kl. 10.20 

Leikrit um kennara á unglingastigi 

8. bekkur 

Kl. 10.30 

Dansatriði 

9. bekkur 

Kl. 10.40 

Árshátíðarmyndband 

10. bekkur 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla