Árshátíð Akurskóla
Í dag héldu nemendur og kennarar Akurskóla glæsilega árshátíð. Atriðin voru fjölbreytt og má með sanni segja að nemendur hafi staðið sig vel og eigi svo sannarlega lof skilið fyrir flutning atriða. Þema árshátíðarinnar að þessu sinni voru klassísk tónverk. Nemendur túlkuðu tónverk eftir meistara liðinna alda og mátti m.a. sjá  Árstíðinar eftir Vivaldi og Karnival dýranna eftir Camille Saint-Saens.
Einnig mátti sjá flutning úr klassískum söngleikjum eins og Kardimommubænum og Konungi ljónanna. Fluttur var frumsaminn leikþáttur þar sem nútíma- og klassískum tónverkum var stillt upp hlið við hlið. Það má með sanni segja að atriðin hafi verið hin glæsilegustu hjá nemendum okkar. Góð mæting var hjá aðstandendum nemenda sem sáu til þess að borðin svignuðu undan kræsingum. Við þökkum kærlega fyrir daginn með von um að allir hafi farið glaðir heim. Í myndamöppunni hérna hægra megin má sjá myndir frá árshátíðardeginum.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


