25. mars 2010

Árshátíð Akurskóla 2010

Árshátíð Akurskóla 2010 Það var mikið líf og fjör í Akurskóla í morgun, á árshátíð skólans.  "Frelsið er yndislegt" var þema árshátíðarinnar og fengu gestir að njóta skemmtilegra atriða á öllum stigum m.a. söngs við lög Ingós og veðurguðanna, dans við tónlist Michael Jacksons, Akurskóli got talent þar sem nemendur sýndu hæfileika sína, myndbandssýning þar sem gert var grín að kennurum skólans og skólahljómsveitin spilaði lag. Þetta var frábær skemmtun og eiga allir þakkir skilið fyrir vasklega framgöngu sína, bæði nemendur, foreldrar og starfsfólk skólans. Það eru komnar myndir af árshátíðinni í myndasafni.
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla