23. mars 2012

Árshátíð Akurskóla

Árshátíð Akurskóla

Það var mikið líf og fjör í Akurskóla í morgun þegar nemendur og kennarar Akurskóla héldu glæsilega árshátíð. Atriðin voru fjölbreytt og má með sanni segja að nemendur hafi staðið sig vel og eiga lof skilið fyrir flutning atriða. Gestir fengu að njóta skemmtilegra atriða á öllum aldursstigum. Sagðir voru brandarar, leikið, sungið og  dansað. Nemendur sviðsettu m.a. Nátttröllið eftir Ragnheiði Jónsdóttur, fluttu atriði úr Galdrakarlinum í Oz og sumir sýndu hæfileika sína á hvíta tjaldinu.  Góð mæting var hjá aðstandendum nemenda sem sáu til þess að borðin svignuðu undan kræsingum. Við þökkum kærlega fyrir daginn með von um að allir hafi farið glaðir heim. Myndir frá  árshátíðinni eru í myndasafni.



 
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla