13. mars 2020

Árshátíð Akurskóla frestað

Árshátíð Akurskóla frestað

Ágætu foreldrar og forráðamenn.

Sú ákvörðun hefur verið tekin vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar að fresta árshátíðum grunnskólanna sem áttu að fara fram í næstu viku.

Þessi ákvörðun er tekin í samráði við fræðsluyfirvöld og neyðarstjórn Reykjanesbæjar og er tilgangurinn sá, þrátt fyrir að ekki sé komið á samkomubann, að draga eins og kostur er úr ónauðsynlegum fjölmennum samkomum.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla