Árshátíð Akurskóla lokið
Árshátíð Akurskóla var haldin í dag, 19. maí. Atriðum frá öllum árgöngum var streymt á Youtbue rás skólans og nemendur horfðu á í skólanum og foreldrar og aðrir aðstandendur heima. Þrátt fyrir smávægilega tækniörðugleika tókst þetta ágætlega en við vorum að sjálfsögðu að gera þetta allt í fyrsta sinn.
Nemendur stóðu sig með miklum glæsibrag og öll atriðin voru vegleg og flott. Nemendur fengu svo skúffuköku og djús í boði skólans.
Við óskum öllum nemendum til hamingju með atriðin sín og minnum á að á morgun er starfsdagur í Akurskóla.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.