29. mars 2011

Árshátíð heppnaðist vel

Árshátíð heppnaðist vel

Árshátíð Akurskóla heppnaðist rosalega vel. Þemað hjá okkur var klassík og við í 6.-7. bekk ákváðum að vinna með tónskáld c.a. frá tímabilinu í kringum 1200-1700. Við kennararnir ákváðum að leyfa nemendum að njóta sín í hugmyndavinnunni og lögðum því einungis af stað með beinagrind að hópaskiptingum.

Hóparnir urðu 6 talsins og innan sumra hópanna urðu til nokkrir litlir hópar.

Einn hópurinn setti upp leikþátt sem nemendur sömdu sjálfir. Leikþátturinn var um fræga tónlistarmenn svo sem Mozart, Justin Bieber o.fl. þar sem nútíminn mætti fortíðinni.

Annar hópur sá um myndskreytingar og teiknaði upp ýmsar myndir tengdar klassískri tónlist, ásamt því að skreyta rýmið okkar í takt við þema árshátíðarinnar.

Þriðji hópurinn útbjó bæklinga um tónskáldin, einn hópurinn vann bæklinginn í tölvu og hinn hópurinn föndraði og klippti til á gamla mátann.

Fjórði hópurinn sá um að semja kynningu um klassíska tónlist og flytja svo á árshátíðinni.

Fimmti hópurinn samdi dansa við ýmist gamla klassíska tónlist eða klassíska tónlist í bland við nýtískupopptónlist. Danshóparnir urðu á endanum fjórir talsins og hver með sinn sérstaka dansstíl. Dansarnir voru svo sýndir á árshátíðinni.

Sjötti hópurinn æfði svo tónverkið "Óður til gleðinn" eftir Beethoven. Nemendur spiluðu á trommur, píanó, gítar og flautu. Tónverkið flutti svo hópurinn á árshátíðinni.

Þó ýmislegt hafi verið erfitt í byrjun undirbúnings. Til dæmis að sannfæra nemendur um ágæti þessa klassíska þema, ásamt því að  samstilling hópa og æfingar hafi oft á tíðum verið erfið og þolinmæði sumra ekki mikil. Þá var afraksturinn alveg hreint frábær og einstaklega gaman að geta sagt að allir nemendur í 6.-7. bekk hafi lagt sitt að mörkum til að gera árshátíðina ógleymanlega.

Takk fyrir frábæra árshátíð krakkar, þið stóðuð ykkur með prýði og enn er verið að hrósa okkur fyrir frábær og frumleg atriði. Auk þess hve vel okkur tókst að koma þessu verkefni frá okkur. Við vitum hvar hæfileikar ykkar liggja og með því að hafa boðið ykkur upp á svona mismunandi hópavinnu þá náðu hæfileikar allra að skína.

Ljósmyndir frá árshátíðinni og árshátíðarundirbúningi er að finna á myndasíðu Akurskóla.

Ykkar umsjónarkennarar, Anna Jóna, Heiðrún Björk og Sólveig Silfá.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla