15. apríl 2010

Barnahátíð í Reykjanesbæ 21. – 25. apríl 2010

Barnahátíð í Reykjanesbæ 21. – 25. apríl 2010 Velkomin á barnahátíð í Reykjanesbæ sem haldin verður í 5. sinn 21. – 25. apríl n.k. með skemmtilegri og skapandi dagskrá fyrir alla fjölskylduna í tilefni vorkomu.

Hátíðin verður sett formlega miðvikudaginn 21. apríl með setningu listahátíðar barna í Duushúsum þar sem bréfdúfum verður sleppt með boð á hátíðina til allra barna á landinu.
Að hátíðinni koma fjöldi tómstundafélaga, íþróttafélög, leik- og grunnskólar og menningarhópar og er frítt á flesta viðburði fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Veitingahús og fyrirtæki verða með ýmis tilboð í tilefni barnahátíðarinnar og ýmsar veitingar í boði þar sem dagskráatriði fara fram.
Fimmtudaginn 22. apríl verður opinn dagur á Ásbrú þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá auk viðburða á barnahátíð. Má þar helst nefna Risakarnival í kvikmyndaveri Atlantic Studios þar sem rifjuð verður upp skemmtileg karnivalstemning sem flestir heimamenn þekkja frá veru varnarliðsins.

Meðal viðburða á barnahátíð má nefna listahátíð barna, listasmiðjur, ljósmyndasýningu, hreystikeppni á nýju hreystibrautinni við Vatnaveröld, dorgkeppni, hlaupakeppni, fjölskylduratleik, hestahátíð og sjóræningjaleik í Vatnaveröld og kálfa, lömb og kiðlinga í Víkingaheimum sem verða á nýrri dýrasýningu þar í sumar. Í Víkingaheimum verður sprell og fjör á fimmtudag og laugardag þar sem hægt verður að taka þátt í víkingaleik og taka þátt í lifandi barnaskemmtun um borð í víkingaskipinu Íslendingi. Svabbi sjóari fræðir börnin um íslensk vatnaskrímsli en á bryggjunni neðan Duushúsa verður hægt að skoða hin ýmsu sjávardýr í tilefni af þema listahátíðar sem í ár er hafið.

Allir sem taka þátt í skipulögðum leikjum á barnahátíðinni fá veglegan þátttökupening. Íbúar eru hvattir til þess að kynna sér dagskrá hátíðairnnar á vefnum barnahatid.is en þar eru viðburðir merktir inn á kort og hægt að hlaða dagskránni í símann.

Kveðja,
Árni Sigfússon bæjarstjóri
 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla