Benni Kalli heimsækir 10. bekk
Í dag fengu nemendur í 10. bekk heimsókn frá Berent Karli Hafsteinssyni. Hann hélt tilþrifamikinn fyrirlestur um hættur í umferðinni og þá einkum í tengslum við bifhjól en Benni Kalli lenti í  ungur bifhjólaslysi. Benni Kalli var með ódrepandi vélhjóladellu sem unglingur. Ferill hans sem vélhjólaknapa varð þó öðruvísi en hann áformaði en hann var ekki orðinn tvítugur þegar hann lenti í mjög alvarlegu slysi sem hann var stálheppinn að sleppa lifandi frá.
Hann missti m.a. annan fótlegginn og gengur með gervifót í dag.
Í erindinu sagði hann með afar líflegum hætti frá lífi sínu fyrir slysið, slysinu sjálfu, úrvinnslunni og hvernig líf hans hefur markast af þessum örfáu augnablikum á unglingsárum. Hann var á mótorhjóli í spyrnu á Akranesi á 200 km/klst. og lenti í holu. Hann kastaðist 65 metra fram fyrir hjólið. Hann hlaut 47 beinbrot og þar af 17 opin brot. Honum var vart hugað líf en hann náði góðum bata og kom og sagði okkur frá slysinu. Það þurfti að saga af honum fótinn vegna sýkingar í beininu. Hann er með gervifót og sýndi okkur fótstubbinn. Við þökkum Benna Kalla fyrir komuna og óskum honum alls hins besta.
 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


