16. október 2015

Benni Kalli heimsækir 10. bekk

Benni Kalli heimsækir 10. bekk

Í dag fengu nemendur í 10. bekk heimsókn frá Benna Kalla en hann varð fyrir hræðilegu slysi um tvítugt. Benni Kalli var með ódrepandi vélhjóladellu sem unglingur. Ferill hans sem vélhjólaknapa varð þó öðruvísi en hann áformaði en hann var ekki orðinn tvítugur þegar hann lenti í mjög alvarlegu slysi sem hann var stálheppinn að sleppa lifandi frá. Hann missti m.a. annan fótlegginn og gengur með gervifót í dag. Í erindinu sagði hann með afar líflegum hætti frá lífi sínu fyrir slysið, slysinu sjálfu og meðferðinni og hvernig líf hans hefur markast af þessum örfáu augnablikum á unglingsárum.

Hann var á mótorhjóli í spyrnu á Akranesi á 200 km/klst. og lenti í holu. Hann kastaðist 65 metra fram fyrir hjólið. Hann hlaut 47 beinbrot og þar af 17 opin brot. Honum var vart hugað líf en hann náði góðum bata og kom og sagði okkur frá slysinu. Það þurfti að saga af honum fótinn vegna sýkingar í beininu. Fyrst var sagað af við ökkla, síðan aðeins ofar, en í lokin var fóturinn sagaður af við hné. Hann er með gervifót og sýndi nemendum fótstubbinn.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla