27. maí 2008

Bjarteyjarsandur

Bjarteyjarsandur

1. og 2. bekkur fór í sveitaferð á Bjarteyjarsand í Hvalfirði. Við keyrðum í mjög góðu veðri og það var tekið einstaklega vel á móti okkur. Við vorum ótrúlega heppin að sjá fullt af lömbum fæðast rétt á meðan við stoppuðum í fjárhúsunum og það mátti sjá ýmiskonar svipbrigði á börnunum þegar þau horfðu á ærnar bera. Þarna var ær sem bar 6 lömbum daginn áður og er það afar sjaldgæft. Það mátti leika sér í hlöðunni í heyinu ef farið var eftir ákveðnum reglum og það var vinsælt. Við sáum hesta, kanínur, kisu, hænuunga og hund. Síðan var farið niður í fjöru og þar gátum við fengið að skoða og snerta krossfiska, ígulker, krabba, marhnúta o.fl. lífverur sem bændurnir á Bjarteyjarsandi hafa fangað í sjónum fyrir utan. Það var hægt að sjá ýmsa fugla, tína skeljar og vaða í sjónum. Að lokum voru grillaðar pylsur. Á heimleiðinni var mikið sungið til að byrja með en þegar leið á ferðina voru margir farnir að dotta, enda búið að vera mikið að gera í sólinni á Bjarteyjarsandi. Frábær ferð í alla staði. Sjá má myndir á myndasíðu.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla