8. mars 2011

Bókagjöf til heiðurs minningu Maríu Kjeld

Bókagjöf til heiðurs minningu Maríu Kjeld

 

María Kjeld fæddist 2. mars 1932 í Tjarnarkoti í Innri Njarðvík, en hún lést 8. október sl.  María helgaði líf sitt uppeldis- og kennslumálum, fyrst sem fóstra og síðar sem sérkennari, einkum fyrir heyrnarlausa og fatlaða. Hún fór til náms í heyrnarfræði og heyrnarmælingum í Hörecentralen í Danmörku 1960. Síðar fór hún til Noregs og lauk prófi 1968 frá Statens special-lærerskole í Osló. Hún starfaði víða, en lengst af var hún skólastjóri Fullorðinsfræðslu fatlaðra, 1983-2002. María tengdist Norðurlöndunum og Færeyjum sértaklega sterkum böndum. Hún ólst upp hjá ömmu sinni og afa í Færeyjum, en fluttist á unglingsárum aftur til Innri Njarðvíkur.

 

 

 

 

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla