Börn frá leikskólum bæjarins í heimsókn
Í morgun heimsóttu tíu börn frá ýmsum leikskólum bæjarins Akurskóla. Með þeim í för voru leikskólakennarar og foreldrar. Að þessu sinni komu börn úr öðrum leikskólum en leikskólunum Holti og Akri sem eru í skólahverfinu. Heimsóknin er liður í undirbúningi barnanna fyrir flutning úr leikskóla yfir í grunnskóla en þau munu öll hefja nám við Akurskóla næsta haust.
Jónína skólastjóri bauð börnin velkomin og sýndi þeim skólann. Börnin skoðuðu íþróttamiðstöðina og sáu nemendur úr Húnum í skólasundi. Eftir það áttu þau stund með yngstu nemendum skólans. Við þökkum börnunum kærlega fyrir komuna og hlökkum til að fá þau í skólann okkar í haust



Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


