19. febrúar 2009

Börn hjálpa börnum

Börn hjálpa börnum

Nemendur í 5. bekk Akurskóla eru að taka þátt í söfnuninni BÖRN HJÁLPA BÖRNUM 2009, sem er árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar í samstarfi við grunnskóla landsins.

Að þessu sinni verður safnað fyrir skólamáltíðum fyrir börnin í ABC skólunum en vegna lágs gengis íslensku krónunnar og hækkandi matarverðs í heiminum hefur verið erfitt að mæta kostnaði vegna matarkaupa. Skólamáltíðin er oft eina máltíð barnsins og er því mjög mikilvægt að geta veitt börnunum staðgóða máltíð í skólanum.

Á heimasíðu ABC barnahjálpar www.abc.is má sjá upplýsingar um ABC barnahjálp.

Söfnunin hjá 5. bekk Akurskóla stendur frá 19. febrúar - 28. febrúar og munu börnin ganga í hús í sínu hverfi og safna framlögum í sérmerkta, númeraða söfnunarbauka.

Við vonum að allir taki vel á móti þeim og styrki þetta góða málefni.  Margt smátt gerir eitt stórt.

 

Umsjónarkennarar, 5. bekkja Akurskóla.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla