Börn hjálpa börnum 2009
Nemendur í 5. bekkjum Akurskóla tóku þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum 2009. Að þessu sinni var safnað fyrir skólamáltíðum fátækra barna. Ein skólamáltíð kostar á núverandi gengi um 50 krónur og skólamáltíðir barns í einn mánuð kosta 1000 kr. Nemendur okkar stóðu sig frábærlega og söfnuðu 77.161 kr. sem dugir til að borga fyrir 1.543 skólamáltíðir fyrir börn í ABC skólunum.
Upphæðin sem hefur safnast frá öllum skólum er komin upp í 7.862.950 kr. sem nægir til að borga fyrir 157.259 skólamáltíðir. 
Með því að ýta á þennan hlekk getið þið skoðað nýjasta fréttabréf ABC þar sem fjallað er um söfnunina “Börn hjálpa börnum”  /media/3/abcnetfrettabrmars09.pdf
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


