1. nóvember 2012

Breytingar á skóladagatali Akurskóla

Breytingar á skóladagatali Akurskóla Ágætu foreldrar


Á starfsmannafundi í Akurskóla 23. október var samþykkt einróma að óska eftir umsögn Skólaráðs Akurskóla og í kjölfarið Fræðsluráðs á breytingum á skóladagatali skólans.


Skólaráð samþykkti þessar breytingar án athugasemda á fundi 24. október og Fræðsluráð samþykkti breytingarnar 1. nóvember.



Helstu breytingar eru að við erum að færa okkur úr svokölluðu þriggja anna kerfi yfir í tveggja anna kerfi.
Þetta þýðir að við munum skila formlegu námsmati til foreldra tvisvar á skólaárinu í janúar og júní.

Við sem störfum í skólanum teljum það heillaspor að það hafi tekist að koma þessum breytingum á skóladagatalinu strax í gegn.



Dagar sem breytast eru:


28. nóvember verður venjulegur kennsludagur en ekki samtalsdagur.


17. janúar verður samtalsdagur en ekki venjulegur kennsludagur. Vorönn hefst 13. janúar


1. mars verður venjulegur kennsludagur en ekki samtalsdagur.


5. júní verður skertur nemendadagur - kennsla hluta úr degi - en verður ekki venjulegur kennsludagur.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla