18. september 2010

Breyttar útivistarreglur

Breyttar útivistarreglur

Frá og með 1. september ár hvert breytast útivistarreglurnar þannig að 12 ára börn og yngri mega vera úti til kl. 20 og 13-16 ára börn mega vera úti til kl. 22.  Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Börn mega ekki vera á almannafæri utan ofangreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum þegar börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla