2. september 2009

Breyttur útivistartími

Breyttur útivistartími

Útivistartími barna og unglinga tók breytingum 1. september. Tólf ára börn og yngri mega vera úti til klukkan 20 en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.

Undantekningar eru fyrir síðari hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu en aldur miðast við fæðingarár.

Í tilkynningu frá lögreglu segir: „útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi tíu tíma svefn á nóttu.”

heimild: visir.is

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla