Brunavarnir Suðurnesja komu í heimsókn

Í tilefni af eldvarnarviku komu fulltrúar Brunavarna Suðurnesja í heimsókn í 3. bekk og fræddu þau um brunavarnir á heimilum. Hver nemandi fékk gjöf frá Brunavörnum Suðurnesja og litabók frá Lions. Nemendur fengu fræðslupakka með sér heim og getraun sem þau eiga að svara. Hápunkturinn var að fá að skoða slökkviliðsbílinn og fá að sprauta vatni úr slöngunni. Þetta var mjög fróðlegt og skemmtilegt.


Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.