Brúum bilið á Þorranum
Brúum bilið á Þorranum
Akurskóli og leikskólarnir Holt og Akur eru að vinna sitt árlega þemaverkefni um Þorrann. Í verkefninu taka þátt rúmlega níutíu börn á aldrinum fimm til sjö ára auk starfsfólks. Nemendum er skipt í sex hópa sem fara á milli skóla og vinna ólík verkefni, en öll tengjast þau annað hvort Þorranum eða gamla tímanum á einhvern hátt. Dæmi um verkefni sem nemendur fást við eru: þæfing utan um steina, dansað og sungið um Ólaf Liljurós, Gilitrutt lesin og leikin, gömlu mánaðarheitin kynnt, þorramatsbingó , rúgbrauðs,-sviðasultu- og smjörgerð, listasmiðju, leikur með gömul gull, ( bein, horn), heimsókn í Stekkjarkot og leikir í Narfakotsseylu. Á föstudeginum hittast svo allir á Akri til að dansa, syngja og smakka á afurðunum.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


