28. maí 2008

Dagskrá næstu daga

Dagskrá næstu daga

Nú fer skólaárinu senn að ljúka. Dagskrá næstu daga verður fjölbreytt, það eru vorferðir, vettvangsferðir, námsmatsdagur, vorhátíð, keppnin Virkjum vísindin og fleira.

 

Föstudaginn 30. maí er námsmatsdagur, þá mæta foreldrar með börnum sínum til umsjónakennara á þeim tíma sem þeir fengu sendan heim með börnum sínum.

 

Mánudaginn 2. júní er vorhátíð í Akurskóla. Þá verða ýmsar fjölbreyttar og skemmtilegar stöðvar í boði, s.s. málningarstöð, spilastöð, boccia, taflkeppni, singstar, íþróttastöð, sundstöð, fótboltastöð og einnig verður hoppukastali og veltibíll í boði. Síðan verða grillaðar pylsur og vonandi verða veðurguðirnir góðir.

 

Þriðjudaginn 3. maí er svo keppnin Virkjum vísindin hjá unga fólkinu og er það 7. bekkur sem tekur þátt að þessu sinni.  Nemendurnir ætla að búa til vistvænt orkuver. Keppnin hefst kl. 13:30

 

Miðvikudaginn 4. júní er síðan vorferð hjá 5.-8. bekk. Að þessu sinni er ferðinni heitið að Úlfljótsvatni við Ljósavatnsvirkjun. Lagt er af stað kl 8:10 og er mikilvægt að allir mæti á réttum tíma. Áætlað er að koma til baka um klukkan 14.00. Í ferðina kostar 1500 kr. á mann og það verður að greiðast fyrir 1.júní til umsjónarkennara.

 

Fimmtudaginn 5. júní verða skólaslit á sal skólans. Mæting er eins og hér segir:  Kl. 9 mætir 1.-2. bekkur, kl. 10 mætir 3.-4. bekku, kl. 11 mætir  5-6 bekkur og kl.  13 mætir  7.-8. bekkur. Námsmatsblöð verða afhent á skólaslitum. 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla