10. nóvember 2009

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu

16. nóvember ár hvert er tileinkaður degi íslenskrar tungu. Í tilefni dagsins þá fáum við í heimsókn til okkar rithöfundinn Áslaugu Jónsdóttur. Hún hefur m.a. myndskreytt og samið margar þeirra bóka sem við höfum lesið í byrjendalæsi. Við höfum undirbúið okkur fyrir heimsóknina með því að lesa bókina Nei! sagði litla skrímslið. Bókina er tilvalið að nota í lífsleiknikennslu þar sem hún fjallar um að það er í lagi að segja nei þegar manni mislíkar eitthvað. Mun Áslaug segja nemendum frá því hvernig þessar bækur urðu til bæði texti og myndir.  Einnig mun hún segja nemendum frá því að þessar bækur eru líka lesnar á hinum Norðurlöndunum. Þessi vinna er samvinna 1. bekkjar og skólahópa leikskólanna Akurs og Holts. Þeir hafa einnig lesið þessar bækur og unnið með. Á degi íslenskrar tungu munu þessir hópar koma í heimsókn í Akurskóla og hlýða á rithöfundinn segja frá. Þannig sláum við tvær flugur í einu höggi og tengjum daginn við byrjendalæsi og verkefnið brúum bilið

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla